Viðskiptavinir
Ánægja viðskiptavina
Viðskiptavinir
Ánægja viðskiptavina

Við veitum framúrskarandi og fjölbreytta þjónustu með jákvæðu viðmóti, virðingu og faglegri ráðgjöf. Það er okkur hjartans mál að mæta þörfum og væntingum viðskiptavina með fagmennsku og fræðandi upplýsingum.

Þjónustufyrirtæki
Viðskiptavinir
Að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins
Vínbúðin er í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins með fjórðu hæstu einkunn allra fyrirtækja í Íslensku ánægjuvoginni.

Íslenska ánægjuvogin er einn mikilvægasti mælikvarði til að fylgjast með hvort markmiðið að vera eitt af bestu þjónustufyrirtækjum landsins, náist. Sérstaklega er horft til fyrirtækja á smásölumarkaði þegar kemur að samanburðinum. Vínbúðin var með næsthæstu einkunn í flokki fyrirtækja á smásölumarkaði og fjórðu hæstu einkunn allra fyrirtækja. Einkunnin hækkaði milli ára og var núna 75,4 stig af 100 mögulegum. Þetta er hæsta einkunn sem viðskiptavinir hafa gefið Vínbúðinni frá upphafi. Alls voru birtar niðurstöður 37 fyrirtækja í 12 atvinnugreinum.

Ánægja viðskiptavina
Vínbúðin
Öll fyrirtæki
Einkunn í Íslensku ánægjuvoginni og samanburður við meðaltal annarra fyrirtækja. Einkunn á skalanum 0 – 100. Könnun framkvæmd af Zenter ehf.
par_skoda_vin-1620x1200.jpg

Árlegar þjónustukannanir mæla ánægju viðskiptavina í hverri Vínbúð fyrir sig. Viðskiptavinir gefa einkunn fyrir þjónustu, vöruval, viðmót og þekkingu starfsfólks. Vínbúðirnar eru flokkaðar í minni og stærri búðir eftir vöruvali. Helstu mælikvarðar eru ánægja með þjónustu og viðmót starfsfólks. Almennt er einkunn minni Vínbúða, sem allar eru á landsbyggðinni, hærri en þeirra stærri. Í flokki stærri búða eru allar Vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu auk Vínbúðanna á Akureyri, í Reykjanesbæ og á Selfossi.

Á heildina litið, hversu ánægð(ur) eða óánægð(ur) ertu með þjónustu Vínbúðarinnar?
2019
2020
Mælt á kvarðanum 1-5. Þjónustukönnun Gallup meðal viðskiptavina Vínbúðanna sept. – des. 2020.
Hversu gott eða slæmt finnst þér viðmót starfsfólks Vínbúðanna almennt vera?

2019
2020
Mælt á kvarðanum 1-5. Þjónustukönnun Gallup meðal viðskiptavina Vínbúðanna sept. – des. 2020.

Tilgangur kannana er að fá fram skoðun viðskiptavina á þeim þáttum sem taldir eru mikilvægastir, niðurstöðurnar eru rýndar og nýttar til umbóta.

Vefurinn
Viðskiptavinir
Vefurinn

Á vefsíðunni vinbudin.is er að finna greinargóðar upplýsingar meðal annars um starfsemina, vöruval, opnunartíma og staðsetningu Vínbúða. Mikil áhersla er lögð á að fræða viðskiptavini og tengja saman vín og mat. Nýr fróðleikur með áherslu á þetta er birtur reglulega.

Á árinu bættust við Mínar síður á vinbudin.is. Viðskiptavinir geta skráð sig þar inn með rafrænum skilríkjum og færast þá inn á lokað svæði. Á Mínum síðum er hægt að setja vörur á topplista, gefa einkunn og skrifa minnisatriði, auk þess er hægt að sjá yfirlit yfir vefpantanir og skoða stöðu þeirra. Eins og áður geta viðskiptavinir verslað í vefbúð á síðunni vinbudin.is, vöruúrvalið þar var aukið verulega á árinu. Fjöldi pantana í vefbúð þrefaldaðist og er sennilegt að aðstæður í þjóðfélaginu, vegna heimsfaraldursins, hafi ýtt undir vefverslun.

vinbudin.is
2.126
þúsund heimsóknir á árinu
Fjöldi viðskiptavina
Viðskiptavinir
Fjöldi viðskiptavina

Viðskiptavinum fjölgaði um 8,5% á árinu og á sama tíma jókst sala áfengis um 18,3%. Það voru 5,5 milljónir viðskiptavina sem fengu þjónustu hjá Vínbúðunum. Flestir viðskiptavina kusu að koma á föstudögum. Þó komu færri viðskiptavinir í lok vikunnar, það er á föstudögum og laugardögum, en undanfarin ár. Vínbúðin hvatti viðskiptavini til að versla á rólegri tímum til að forðast biðraðir sem voru afleiðingar fjöldatakmarkana vegna COVID-19.

Hlutfall viðskiptavina eftir dögum
afgreidslukassi_grima-1620x1200.jpg

Flestir viðskiptavinir heimsóttu Vínbúðirnar 30. desember, þann dag komu tæplega 44 þúsund viðskiptavinir. Þeir eru fimm dagarnir á árinu sem fleiri en 37 þúsund viðskiptavinir fengu þjónustu. Til samanburðar þá er meðalfjöldi viðskiptavina á hefðbundnum föstudegi tæplega 32 þúsund. Þessa fjölgun viðskiptavina og söluaukningu má að mestu rekja til ástandsins sem ríkti í samfélaginu. Sala Fríhafnarinnar lagðist að mestu af og barir og veitingahús voru lokuð stóran hluta ársins.

Fjöldi viðskiptavina
Flokkað eftir stærstu dögum ársins ásamt samanburði meðalfjölda á föstudegi
5.549
þúsund viðskiptavinir

ÁTVR hefur með markvissum hætti hvatt viðskiptavini til að draga úr notkun einnota burðarpoka með því að bjóða fjölbreytt úrval af fjölnota burðarpokum á hagstæðu verði. Viðskiptavinir hafa tekið áskoruninni vel og voru tæplega 66 þúsund fjölnota pokar seldir á árinu. Hlutfall viðskiptavina sem kaupa einnota burðarpoka fer lækkandi og er nú tæplega 24%, engu að síður voru um 1,3 milljónir einnota burðarpoka seldir. Á árinu var hætt að bjóða plastpoka sem valkost einnota burðarpoka, núna eru allir einnota burðarpokar gerðir úr niðurbrjótanlegu efni.

2020 2019 % breyting
Seldir lítrar 26.810.077 22.664.125 18,3%
Fjöldi viðskiptavina 5.549.232 5.115.223 8,5%
Einnota burðarpokar 1.307.179 1.274.257 2,6%
Fjölnota burðarpokar 65.608 54.305 20,8%
Hlutfall viðskiptavina sem kaupa einnota burðarpoka 23,6% 24,9% -5,4%
9,4
milljónir í pokasjóð
23,6%
viðskiptavina kaupa einnota burðarpoka
65.608
fjölnota pokar seldir
Vínbúðir ársins
Viðskiptavinir
Vínbúðir ársins

Öllum Vínbúðum eru sett mælanleg markmið til að meta árangur í rekstri. Markmiðin eru meðal annars um skilríkjaeftirlit, ánægju með þjónustu, viðmót starfsfólks, rýrnun og gæðaeftirlit. Vínbúðunum er skipt í tvo flokka eftir fjölda tegunda í vöruvali, stærri og minni Vínbúðir. Í flokki stærri Vínbúða eru þær 17, en 34 í flokki þeirra minni. Mánaðarlega eru niðurstöður mælinga birtar og gerðar aðgengilegar öllum Vínbúðum.

Árlega er starfsfólki þeirra Vínbúða sem bestum árangri ná, veitt viðurkenning. Að þessu sinni var Vínbúðin í Garðabæ valin Vínbúð ársins í flokki stærri Vínbúða og í flokki minni Vínbúða var það Vínbúðin á Flúðum. Auk þess fengu Vínbúðirnar á Dalvegi og í Ólafsvík sérstaka viðurkenningu.

Vínbúð ársins

í flokki stærri

Vínbúða 2020

Garðabær

Vínbúð ársins

í flokki minni

Vínbúða 2020

Flúðir
Ábyrgt vöruval
Viðskiptavinir
Ábyrgt vöruval
vidskiptavinur_kona-1620x1200 copy.jpg
Norrænt samstarf á sviði samfélagsábyrgðar

Í nútíma samfélagi eru gerðar sífellt meiri kröfur til fyrirtækja á sviði samfélagsábyrgðar. Allt frá árinu 2009 hafa norrænu áfengiseinkasölurnar Alko í Finnlandi, Systembolaget í Svíþjóð, Vinmonopolet í Noregi, Rúsdrekkasøla Landsins í Færeyjum og ÁTVR verið í samstarfi í vinnu sem snýr að siðferðilegum grundvallarreglum í aðfangakeðjunni. Markmið samstarfsins á sviði samfélagsábyrgðar er að tryggja, eins vel og kostur er, að allt áfengi sé framleitt samkvæmt alþjóðlegum samþykktum og siðareglum.

Allar einkasölurnar eru meðlimir í alþjóðasamtökunum amfori, en markmið þeirra er að tryggja aukna samfélagsábyrgð í aðfangakeðjunni. Í gegnum árin hafa helstu vínframleiðslulönd heims verið heimsótt þar sem fundað hefur verið með helstu hagsmunaaðilum. Á fundunum hafa siðareglur sem einkasölurnar hafa lagt til grundvallar verið kynntar. Siðareglurnar byggja á siðareglum amfori. Verkefninu er ætlað að leiðrétta hegðun, ef úrbóta er þörf, en ekki útiloka vörur nema önnur úrræði hafi verið fullreynd. Á undanförnum árum hafa Alko, Systembolaget og Vinmonopolet staðið fyrir fjölda úttekta á vegum alþjóðlegra úttektaraðila í samstarfi við amfori. Úttektirnar byggja á því að meta framleiðendur og/eða ræktendur á grundvelli siðareglnanna og gera áætlun til úrbóta ef þörf er á. Í ár þurfti að fresta fjölda úttekta þegar heimsfaraldur skall á, en um leið og aðstæður leyfa verður haldið áfram þar sem frá var horfið. Allar niðurstöður úttekta eru birtar einkasölum á sérstöku vefsvæði amfori.

Vöruval

Vöruval Vínbúðanna byggir á reglugerð um vöruval, innkaup og dreifingu ÁTVR á áfengi (nr.1106/2015) með síðari breytingum. Í grunninn ræðst vöruvalið af eftirspurn viðskiptavina. Vöruval byggir á þremur megin söluflokkum, kjarna, reynslu og sérflokki. Auk þess eru smærri tímabundnir flokkar sem tengjast ákveðnum árstíðum eða tímabilum, svo sem þorra, sumri og jólum. Kjarni er megin söluflokkurinn og myndar grunn að vöruvali hverrar Vínbúðar. Vöruval í kjarna er endurmetið þrisvar á ári.

Reynsluflokkur er ætlaður nýjum vörum og fær dreifingu í fjórar Vínbúðir við upphaf sölu. Vínbúðirnar eru Heiðrún, Álfrún, Kringlan og Skútuvogur. Ef reynsluvara nær tilteknum viðmiðum í sölu færist hún í kjarna og verður þar með fáanleg í fleiri Vínbúðum. Á hverju tímabili eru 100 söluhæstu vörunum í reynsluflokki dreift í þrjár Vínbúðir til viðbótar þeim fjórum sem hafa allan reynsluflokkinn, þær eru Vínbúðirnar Dalvegur, Skeifan og Akureyri.

Sérflokki er ætlað að mæta óskum viðskiptavina og styðja stefnuna um að veita framúrskarandi þjónustu og bjóða vöruval sem byggir á fjölbreytni og gæðum.

3.699
vörur í vöruvali
75%
viðskiptavina ánægðir með vöruvalið
806
nýjar vörur í reynslusölu á árinu

Vínbúðum er skipt í stærðarflokka og grundvallast röðun þeirra í flokka eftir sölu. Alls eru flokkarnir níu. Í minnsta flokknum K1 eru að lágmarki 100 vörur í grunnvöruvali. Í þeim stærsta K9 eru að lágmarki 1.500 vörur. Vöruval minnstu búðanna er þó nær því að vera 200 vörur í heildina og mesta vöruval í Vínbúð er allt að 2.900 vörur. Viðskiptavinir nýta sér í auknu mæli að geta pantað vörur í vefbúð og fá afhentar í Vínbúð að eigin vali eða sækja beint í afgreiðslu dreifingarmiðstöðvar á Stuðlahálsi. Veisluvín eru einnig í auknu mæli afgreidd beint frá dreifingarmiðstöð. Þegar litið er á hlutdeild Vínbúða í heildarsölu þá hafa K1 - K5 Vínbúðir, vefbúð og veisluvín um 21% hlutdeild en ef litið er á fjölda Vínbúða í hlutfalli við heildarfjölda þeirra þá er hlutfall þeirra 67%.

Markaðshlutdeild Vínbúðaflokka í heildarsölu Vínbúða
Vínbúðir flokkaðar eftir stærð

Sérstakar áherslur í vöruvali

Sérstakar áherslur hafa verið í vöruvali einstakra Vínbúða. Bjór hefur fengið aukna dreifingu í Vínbúðina í Skútuvogi. Á árinu bættist Heiðrún einnig í þann flokk eftir að bjórrými verslunarinnar var stækkað. Léttvín og sterkt áfengi í dýrari verðflokkum hafa fengið dreifingu í Vínbúðirnar Heiðrúnu og Kringluna.

ÁTVR leggur áherslu á að bjóða vörur sem framleiddar eru í sátt við samfélag og umhverfi. Viðskiptavinum er gert auðveldara fyrir með að velja slíkar vörur með sérmerkingum bæði í hillum Vínbúða og á vinbudin.is. Á undanförnum árum hefur verið lögð áhersla á að auka fjölbreytni lífrænt vottaðra vara. Rannsóknir sýna að lífræn ræktun bindur meira kolefni en önnur ræktun og stuðlar að sjálfbærni. Í árslok voru 189 tegundir af lífrænt vottuðum vörum í sölu, flestar vín og var um 8% af seldum lítrum léttvíns lífrænt vottuð.

Á vinbudin.is geta viðskiptavinir afmarkað leit eftir fjölda flokka, svo sem sérmerkingum eins og lífrænt, bíódínamik, sanngjarnt, vegan og fleiri þáttum. Til viðbótar er hægt að afmarka leit eftir landi, framleiðanda, þrúgu, stærð og umbúðargerð svo eitthvað sé nefnt.

setja_vin_kerru-1620x1200.jpg
Gæðaeftirlit vöru

Áður en vörur eru samþykktar í vöruval eru þær skoðaðar. Það er gert til að tryggja að þær uppfylli formskilyrði laga og reglna. Ef ekki eru gerðar athugasemdir fara vörur í skynmat til að tryggja gæði. Til viðbótar er styrkleiki alkóhóls mældur í öllum vörum. Vín er einnig mælt í sérhæfðu mælitæki þar sem, auk alkóhóls, er meðal annars mældur sykur, súlfít, sýra og fleiri þættir sem gagnast við gæðaeftirlit. Þannig er hægt að veita viðskiptavinum sem áreiðanlegastar upplýsingar.

Á árinu voru framkvæmdar 2.149 mælingar. Flestar mælingar staðfestu réttar merkingar. Í 103 tilvikum eða 4,8% fundust frávik frá uppgefnu alkóhólmagni. Brugðist er við ef frávik eru fyrir utan skilgreind viðmiðunarmörk.

Haustið 2020 tók ÁTVR þátt í rannsóknarverkefni á glútenfríum bjór sem unnið var í samstarfi við einkasölur á Norðurlöndum. Markmið rannsóknarinnar var að greina hvort glúteninnihald væri innan leyfilegra marka. Mældir voru 16 glútenfríir bjórar frá Íslandi, þeir innihéldu glúten undir leyfðum viðmiðunarmörkum sem leyfir bjór að fá merkinguna glútenfrír.

Vörugæði og neysluöryggi eru meginstoðir í ábyrgri starfsemi ÁTVR. Fjöldi skilaðra eininga á árinu voru 3.838 sem er lítilsháttar aukning á milli ára. Flest vöruskil má rekja til korkskemmda. Af hverjum 100 þúsund seldum einingum var um 7 skilað. Fjöldi innkallana á árinu voru 13. Helstu orsakir voru frávik í gæðum.