Frábært starfsfólk er grunnur að góðum árangri. Við viljum eftirsóknarverðan vinnustað þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð. Áhersla er lögð á að starfsfólk geti vaxið í starfi og aflað sér þekkingar sem stuðlar að starfsánægju og framúrskarandi þjónustu.
Áhersla er lögð á að skapa eftirsóknarverðan vinnustað þar sem markmiðið er að stuðla að almennri starfsánægju, góðum starfsanda og framúrskarandi þjónustu. Gildin Lipurð, Þekking og Ábyrgð endurspegla þær áherslur og skapa grunn að góðum vinnustað. Árlega gerir Gallup viðamikla vinnustaðagreiningu til að skoða líðan og fá fram skoðun starfsfólks á fjölmörgum þáttum. Helgun starfsfólks er einn mikilvægasti mælikvarðinn og er helgun mæld með þrettán spurningum. Meðaltal helgunar er á styrkleikabili og lækkaði óverulega milli ára.
Til að stuðla að umbótum og viðhalda því sem vel er gert þá eru heildarniðurstöður og niðurstöður hverra starfsstöðva kynntar starfsfólki. Samhliða vinnustaðagreiningu er framkvæmt yfirmannamat. Allir yfirmenn, sem hafa fimm eða fleiri undirmenn, fá mat og kynningu.
Val á stofnun ársins er samræmd könnun stofnana í eigu ríkisins. Könnunin mælir starfsánægju og fjölmarga aðra þætti sem snúa að stjórnun og starfsumhverfi. ÁTVR var í tíunda sæti stórra stofnana, þeirra sem hafa 50 starfsmenn eða fleiri, með heildareinkunnina 4,23. Til samanburðar er heildareinkunn allra stofnana 3,95.
Siðareglum er ætlað að skerpa á ábyrgð starfsfólks og undirstrika mikilvægi þess að allir hagsmunaaðilar njóti sanngirni og jafnræðis. Til að gera starfsfólki kleift að sinna starfi sínu sem best er mikil áhersla lögð á að veita sem bestar upplýsingar um allt það er snýr að rekstrinum. Samskiptavefurinn Workplace er öflugur miðill. Hann er notaður til að miðla upplýsingum til starfsfólks um mál sem snúa að rekstri eða félagslegum þáttum. Á árinu varð hlutverk Workplace enn mikilvægara þegar ekki var mögulegt að halda reglulega starfsmannafundi sökum heimsfaraldurs.
ÁTVR er mjög annt um heilsu starfsfólks og hefur velferð þess ávallt að leiðarljósi. Áhersla er lögð á hvatningu og markvissa miðlun upplýsinga. Viðverustefna var samþykkt, en stefnunni er ætlað að upplýsa starfsfólk um mikilvæg atriði sem tengjast fjarveru frá vinnu. Starfsfólk er hvatt til að huga að heilsu og vellíðan með margvíslegum hætti. Boðið er upp á styrki og fræðslu og hvatt er til þátttöku í vinnustaðakeppnunum Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna.
Starfsfólki eru boðnir samgöngusamningar. Markmið þeirra er í meginatriðum tvíþætt: að auka hreyfingu og minnka umhverfisáhrif. Starfsfólk sem gerir samgöngusamning skuldbindur sig til að ferðast til og frá vinnu með vistvænum hætti, að jafnaði þrisvar í viku eða oftar. Boðið er upp á samninga eftir árstíðum, sumar og vetur. Fleira starfsfólk óskar eftir samningi yfir sumartímann. Hlutfall starfsfólks sem gerði sumarsamning lækkaði á milli ára úr 43% í 40%. Árlega er gerð könnun á meðal starfsfólks þar sem spurt er út í ýmsa þætti tengda samgöngusamningnum og ferðamáta. Helstu niðurstöður voru að notkun á einkabíl hefur aukist á kostnað þess að ganga í vinnuna. Notkun á einkabíl til og frá vinnu er fyrsti kostur yfir vetrartímann hjá 54% starfsfólks.
Heimsfaraldur hafði áhrif á ferðamáta starfsfólks og fækkaði þeim sem nýttu sér almenningssamgöngur. Notkun á rafhjólum jókst og rafbílum hefur fjölgað, enda hefur hleðslustöðvum við Stuðlaháls verið fjölgað til að styðja við orkuskipti í samgöngum.
Af þeim sem eru með samgöngusamning, og tóku afstöðu, eru 84% ánægðir með samninginn. 90% telja að samningurinn og hreyfing í kjölfarið hafi haft jákvæð áhrif á heilsu og líðan.
Til samanburðar, þá er samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir árin 2010-2030 stefnt að því að fækka ferðum einkabíla í 58% og að 8% allra ferða verði farnar á hjóli, 12% ferðist með strætó og 22% gangandi. Starfsfólk ÁTVR á höfuðborgarsvæðinu hefur þegar náð þessu markmiði.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um Sjálfbæra þróun; Sjálfbærar borgir og samfélög númer 11, Heilsa og vellíðan númer 3, og Aðgerðir í loftslagsmálum númer 13, fléttast inn í samgöngumálin. Það leiðir af sér minna svifryk, minni útblástur, minni gatnaskemmdir, styttri umferðartíma og betri andlega og líkamlega heilsu.
Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna eru skemmtilegar keppnir sem efla liðsheild og hvetja fólk til hreyfingar. Frábær þátttaka var í Lífshlaupinu og tóku 266 starfsmenn þátt í keppninni. Veitt voru verðlaun fyrir fjölda mínútna og fjölda daga og varð Vínbúðin í fyrsta sæti í báðum flokkum. Færri tóku þátt í Hjólað í vinnuna en árangurinn var engu að síður frábær og varð Vínbúðin í öðru sæti í sínum flokki í vinnustaðakeppninni. Lið Vínbúðanna varð í fyrsta sæti í keppni um hlutfall kílómetra, að meðaltali hjólaði hver liðsmaður tæplega 800 km.
Starfsfólki er boðið upp á heilsufarsskoðun þar sem mældur er blóðþrýstingur, kólesteról og blóðsykur, auk þess er boðið upp á viðtöl þar sem lögð er áhersla á álag og streitu. Árlega er boðið upp á fyrirlestra og fræðslu um andlega og líkamlega heilsu.
Til að stuðla að sjálfbærni og geta boðið upp á hollan og næringarríkan mat var haldið áfram með matjurtagarð á lóðinni á Stuðlahálsi. Garðurinn var stækkaður lítillega til að auka fjölbreytni. Í garðinum voru ræktaðar ýmsar tegundir: rabarbari, rifsber, kryddjurtir, kartöflur, grænkál og jarðarber. Mikil ánægja var með uppskeruna og er markmiðið að halda áfram með ræktunina.
Í árslok voru 528 starfsmenn á launaskrá. Konur eru fleiri í starfsmannahópnum eða 303 á móti 225 körlum. Ráðningarformin eru tvö. Fastráðning sem getur bæði verið fullt starf og hlutastarf, og tímavinna. Tímavinnustarfsfólk vinnur almennt á álagstímum seinni hluta vikunnar, í sumarafleysingum og um jól. Heildarfjöldi starfsmanna sem fengu greidd laun á árinu var 735. Umreiknað í ársverk voru þau 356, tveimur fleiri en árið 2019.
Starfsmannavelta fyrirtækisins í heild var 28%. Mesta starfsmannaveltan var hjá starfsfólki í tímavinnu, 36%, en minnst hjá starfsfólki í fullu starfi, 3%.
Markmiðið er að halda vinnustaðnum öruggum og slysalausum. Það náðist ekki á árinu og voru alls skráð 12 slys. Átta slys gerðust á starfsstöð og fjögur slys urðu á leið til eða frá vinnu. Hlutfall slysa milli kynja skiptast þannig að einn karlmaður og sjö konur slösuðust á vinnustað. Sami fjöldi kvenna og karla slasaðist á leið í eða úr vinnu.
Á árinu var skipt um viðverukerfi, það var gert í áföngum og í samræmi við viðverustefnu var skilgreiningum á langtíma- og skammtímaveikindum breytt. Nú er skammtímafjarvera vegna veikinda allt að tvær vikur og langtímafjarvera er fjarvera lengri en tvær vikur samfellt. Samkvæmt þessum nýju skilgreiningum er hlutfall skammtímafjarveru vegna veikinda og veikinda barna alls 3,0%. Hafa ber í huga að COVID-19 getur haft áhrif til hækkunar veikindaskráningu. Starfsfólk var hvatt til að halda sig heima ef það fann fyrir flensueinkennum eða kvefi, sem annars hefði hugsanlega mætt til vinnu.
DM | Skrifstofa | Vínbúðir | Alls | |
---|---|---|---|---|
Karl | 2,4 | 1,0 | 3,3 | 2,7 |
Kona | 4,9 | 3,6 | 3,1 | 3,3 |
Alls | 2,7 | 2,5 | 3,2 | 3,0 |
Áhersla er lögð á að starfsfólk geti vaxið í starfi og aflað sér þekkingar sem stuðlar að starfsánægju og framúrskarandi þjónustu. Megináhersla er lögð á vöruþekkingu með áherslu á tengsl vína og matar. Vegna heimsfaraldurs varð mikil röskun á fræðsluáætlun ársins og þurfti að endurhugsa alla fræðslu þar sem fókusinn fór frá staðbundinni fræðslu yfir í rafræna. Samanlagt urðu fræðslustundir ársins 2.822 og fækkaði um 60% milli ára. Mesta fækkun fræðslustunda varð eðlilega í vínfræðslu. Á síðari hluta ársins var boðið upp á rafræna vínfræðslu. Mikil ánægja var með hana, sérstaklega á landsbyggðinni.
Fræðsluflokkar | Starfsfólk | Konur | Karlar | Tímar alls | Meðalfjöldi á stöðugildi | Fjöldi námsk. |
---|---|---|---|---|---|---|
Skyndihjálp, lyftara- og öryggisnámskeið | 102 | 83% | 17% | 286 | 0,80 | 20 |
Móttaka nýliða og íslenskukennsla | 163 | 67% | 33% | 529 | 1,49 | rafræn |
Almenn fræðsla m.a. umhverfisvernd, samskipti og góð heilsa | 1162 | 68% | 32% | 674 | 1,89 | staðbundin/rafræn |
Vínskóli Vínbúða | 16 | 31% | 69% | 384 | 1,08 | 1 |
Vínráðgjafafræðsla | 706 | 63% | 37% | 949 | 2,67 | rafræn |
Samtals námskeiðsstundir | 2.822 | 7,93 |
Í þjónustukönnun eru viðskiptavinir spurðir um afstöðu til þekkingar starfsfólks. 79% telja starfsfólk Vínbúðanna búa yfir mjög eða frekar mikilli þekkingu. Eingöngu 2% telja þekkinguna mjög eða frekar litla.
Starfsmannasamtöl eru hluti af starfsþróun. Öllu starfsfólki er boðið að lágmarki upp á tvö samtöl á ári. Samtalinu er ætlað að gefa starfsmanni og stjórnanda færi á að ræða verkefni, möguleg vandamál og aðgerðir til úrbóta. Megináherslur samtalanna eru væntingar, starfsandi og stuðningur í starfi.
Öll starfsemi ÁTVR er á Íslandi og því er ekki talin hætta á að brotið sé á réttindum starfsmanna varðandi samningsrétt eða þátttöku í stéttarfélögum.
ÁTVR virðir mannréttindi og fylgir lögum og reglum sem gilda um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Starfsfólk fær greidd laun í samræmi við kjarasamninga, fyrir utan forstjóra. Fjármála- og efnahagsráðherra, fyrir hönd ríkisins, gerir kjarasamning við viðkomandi stéttarfélög. Gerðir hafa verið stofnanasamningar um nánari útfærslur kjarasamnings við annars vegar Sameyki og hins vegar einstök félög háskólamenntaðra starfsmanna. Allt starfsfólk er í stéttarfélagi.
Starfsfólk undir 20 ára aldri er ekki ráðið til starfa. Ástæðan er sú að viðskiptavinir þurfa að hafa náð 20 ára aldri til að mega versla í Vínbúðum.
Starfsfólk er ýmist ráðið tímabundið eða fastráðið. Uppsagnafrestur starfsfólks er samkvæmt viðeigandi kjarasamningum en er ólíkur eftir ráðningarformi, 1 mánuður hjá tímavinnustarfsfólki en að lágmarki 3 mánuðir fyrir fastráðna.
Starfsfólk sem ráðið er til starfa fyrir gildistöku starfsmannalaganna frá júní 1996, getur átt rétt til biðlauna ef starf þeirra verður lagt niður.
ÁTVR hefur sett sér jafnlaunastefnu og birt jafnréttisáætlun. Markmið jafnlaunastefnu er að allt starfsfólk hljóti jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni, þjóðerni eða öðrum órökstuddum þáttum. Jafnréttisáætlun er ætlað að stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnri stöðu þeirra og virðingu. ÁTVR leggur áherslu á að allir fái notið sín án tillits til kynferðis, kynþáttar, trúarbragða, aldurs eða búsetu. Jafnréttisáætlun ÁTVR byggir á lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
ÁTVR fékk Jafnlaunavottun í nóvember 2018. Markmið með innleiðingu jafnlaunakerfisins samkvæmt jafnlaunastaðlinum (ÍST:85 2012) er að viðhalda launajafnrétti og uppfylla skyldur atvinnurekenda samkvæmt III kafla laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna. Með vottun felst jafnframt skuldbinding til að vinna að stöðugum umbótum, hafa eftirlit með viðmiðum og bregðast við frávikum sem upp kunna að koma.