Árið 2020 var óvenjulegt ár og varð afkoma ársins umfram áætlun. Fjöldi viðskiptavina var 5,5 milljónir sem er 8,3% fjölgun milli ára. Hagnaður ársins var 1.821 m.kr. Eignir námu 7.309 m.kr., skuldir voru 1.870 m.kr. og eigið fé nam 5.439 m.kr. í árslok 2020. Greiddur var 1.000 m.kr. arður í ríkissjóð.
Áfengi var selt fyrir 38,4 ma.kr. með virðisaukaskatti. Sala áfengis í lítrum jókst um 18,29% frá árinu á undan og seldust 26.810 þúsund lítrar, þar af var bjórsala 20.584 þúsund lítrar.
Sala tóbaks nam 12,5 ma.kr. með virðisaukaskatti. ÁTVR innheimtir tóbaksgjald. Gjaldið nam 5.970 m.kr. á árinu 2020 og hækkaði um 284 m.kr. frá árinu 2019. Sala vindlinga í magni jókst um 8,6%. Sala vindlinga nam 942,5 þúsund kartonum og af vindlum seldust 4.578 þúsund stykki.
Selt magn neftóbaks var 25.434 kg og var samdráttur 44,8% frá fyrra ári.
Á árinu fengu 721 starfsmenn greidd laun hjá ÁTVR. Margir eru í hlutastarfi. Ársverk voru 356, sem er aukning um tvö frá 2019.
Ýmsar framkvæmdir voru á árinu. Þær helstu voru að vínbúðirnar í Mosfellsbæ, Þórshöfn og Blönduósi fluttu í stærra og betra húsnæði. Vínbúðirnar á Reyðarfirði og Djúpavogi voru endurnýjaðar frá grunni og stækkaðar. Unnið var að endurbótum í vínbúðunum í Kringlunni, Eiðistorgi og Heiðrúnu á Stuðlahálsi.
Lögum um gjald af áfengi og tóbaki var breytt í upphafi árs þannig að bæði áfengisgjald og tóbaksgjald var hækkað um 2,5%.
Forstjóri ÁTVR staðfestir ársreikning fyrirtækisins fyrir árið 2020 með rafrænni undirritun.
Reykjavík, 31. mars 2021
Ríkisendurskoðandi starfar á grundvelli laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og siðareglur alþjóðasamtaka ríkisendurskoðana. Hlutverk ríkisendurskoðanda er að tryggja að fram fari endurskoðun og eftirlit í samræmi við 4. gr. laganna.
Ríkisendurskoðandi ber húsbóndaábyrgð á störfum þeirra endurskoðenda sem starfa hjá Ríkisendurskoðun og framkvæma endurskoðun á grundvelli laga um endurskoðendur og endurskoðun, lögum um ársreikninga og þeim almennu reglum sem þeir hlíta samkvæmt alþjóðlegum endurskoðunarstöðlum.
Kannað var hvort rekstur ÁTVR var í samræmi við þau lög sem gilda um fyrirtækið og eftir atvikum fjárlög og fjáraukalög, sbr. meginreglur laga nr. 46/2016 og lög um opinber fjármál nr. 123/2015.
Endurskoðunin var framkvæmd í samræmi við lög nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og lög nr. 94/2019 um endurskoðendur og endurskoðun.
Ríkisendurskoðun, 26. mars 2021
Undirritað rafrænt
Skúli Eggert Þórðarson
Við höfum endurskoðað meðfylgjandi ársreikning ÁTVR fyrir árið 2020. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn sýni glögga mynd af fjárhagsstöðu ÁTVR 31. desember 2020, afkomu fyrirtækisins og breytingu á handbæru fé á árinu 2020, í samræmi við lög um opinber fjármál og lög um ársreikninga.
Endurskoðað var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila. Ábyrgð samkvæmt þeim stöðlum er nánar lýst í kaflanum um ábyrgð endurskoðanda hér á eftir. Við erum óháð ÁTVR og höfum starfað í samræmi við lög nr. 46/2016 um Ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga og siðareglur Ríkisendurskoðunar. Við teljum að við endurskoðunina höfum við aflað nægilegra og viðeigandi gagna til að byggja álit okkar á.
Forstjóri er ábyrgur fyrir gerð og framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um bókhald og lög um opinber fjármál með vísan til laga um ársreikninga. Forstjóri er einnig ábyrgur fyrir því innra eftirliti sem nauðsynlegt er að sé til staðar við gerð og framsetningu ársreikningsins, þannig að hann sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Markmið okkar er að afla nægjanlegrar vissu um að ársreikningurinn sé án verulegra annmarka, hvort sem er af völdum sviksemi eða mistaka og að gefa út áritun sem felur í sér álit á ársreikningnum.
Nægjanleg vissa er mikið öryggi, en ekki trygging þess að endurskoðun sem framkvæmd er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni uppgötva allar verulegar skekkjur séu þær til staðar. Skekkjur geta orðið vegna mistaka eða sviksemi og eru álitnar verulegar ef þær gætu haft áhrif á fjárhagslega ákvarðanatöku notenda ársreikningsins, einar og sér eða samanlagðar.
Endurskoðun var í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla fyrir opinbera aðila en hún byggir á faglegri dómgreind og gagnrýnni hugsun. Við framkvæmum einnig eftirfarandi:
Okkur ber skylda til að upplýsa forstjóra ÁTVR um áætlað umfang og tímasetningu endurskoðunarinnar. Jafnframt var upplýst um mikilvæg atriði sem fram komu við endurskoðunina, þar á meðal eftir atvikum verulega annmarka á innra eftirliti.
Ríkisendurskoðun, 6. apríl 2021
Undirritað rafrænt
Óskar Sverrisson, endurskoðandi.
Skýr. | 2020 | 2019 | |
---|---|---|---|
Rekstrartekjur | |||
Sala áfengis | 34.635.754 | 27.275.183 | |
Sala tóbaks | 10.077.180 | 9.594.068 | |
Sala umbúða o.fl. | 191.085 | 99.794 | |
44.904.019 | 36.969.045 | ||
Rekstrargjöld | |||
Vörunotkun | 10 | 38.051.716 | 31.273.672 |
Laun og launatengd gjöld | 11 | 3.201.232 | 2.961.032 |
Húsnæðiskostnaður | 808.909 | 721.890 | |
Sölu- og dreifingarkostnaður | 200.567 | 238.758 | |
Stjórnunar- og skrifstofukostnaður | 380.993 | 372.512 | |
Annar rekstrarkostnaður | 54.329 | 50.816 | |
Afskriftir | 13 | 275.565 | 246.544 |
42.973.311 | 35.865.224 | ||
Rekstrarhagnaður | 1.930.708 | 1.103.821 | |
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) | 12 | (109.399) | (47.410) |
Hagnaður ársins | 1.821.309 | 1.056.411 |
Skýr. | 2020 | 2019 | |
---|---|---|---|
Eignir | |||
Rekstrarfjármunir | 4,13 | 1.540.397 | 1.532.798 |
Eignarhlutir í öðrum félögum | 5,14 | 7.500 | 7.500 |
Fastafjármunir samtals | 1.547.897 | 1.540.298 | |
Birgðir | 6,15 | 2.345.597 | 1.944.593 |
Viðskiptakröfur | 7,16 | 1.130.002 | 2.156.340 |
Handbært fé | 8 | 2.285.228 | 604.435 |
Veltufjármunir samtals | 5.760.827 | 4.705.368 | |
Eignir samtals | 7.308.724 | 6.245.666 | |
Eigið fé og skuldir | |||
Eigið fé | |||
Óráðstafað eigið fé | 17 | 5.438.935 | 4.617.626 |
Eigið fé samtals | 5.438.935 | 4.617.626 | |
Skammtímaskuldir | |||
Lánardrottnar | 9 | 1.071.660 | 859.458 |
Aðrar skammtímaskuldir | 798.129 | 768.582 | |
Skammtímaskuldir samtals | 1.869.789 | 1.628.040 | |
Eigið fé og skuldir samtals | 7.308.724 | 6.245.666 | |
Skuldbindingar | 18 |
Skýr. | 2020 | 2019 | |
---|---|---|---|
Rekstrarhreyfingar | |||
Hagnaður ársins | 1.821.309 | 1.056.411 | |
Rekstrarliðir sem ekki hafa áhrif á sjóðstreymi: | |||
Afskriftir | 13 | 275.565 | 246.544 |
Söluhagnaður af fastafjármunum | (98.033) | (14.035) | |
Veltufé frá rekstri | 1.998.841 | 1.288.920 | |
Breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum: | |||
Birgðir, lækkun (hækkun) | (401.004) | 178.486 | |
Skammtímakröfur (hækkun) | 1.026.338 | (331.916) | |
Skammtímaskuldir (lækkun) | 241.749 | (144.370) | |
867.083 | (297.800) | ||
Handbært fé frá rekstri | 2.865.924 | 991.120 | |
Fjárfestingarhreyfingar | |||
Innréttingar og annar búnaður | 13 | (245.659) | (435.848) |
Bifreiðar | 13 | (58.771) | (40.453) |
Söluverð rekstrarfjármuna | 119.298 | 29.803 | |
Fjárfestingarhreyfingar | (185.132) | (446.498) | |
Fjármögnunarhreyfingar | |||
Arður til ríkissjóðs | 17 | (1.000.000) | (1.000.000) |
Fjármögnunarhreyfingar | (1.000.000) | (1.000.000) | |
Hækkun (lækkun) á handbæru fé | 1.680.793 | (455.377) | |
Handbært fé í ársbyrjun | 604.435 | 1.059.812 | |
Handbært fé í lok ársins | 2.285.228 | 604.435 |
1. Ársreikningur Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins er gerður í samræmi við lög nr. 3/2006 um ársreikninga og reglugerð nr. 696/2019 um framsetningu og innihald ársreikninga og samstæðureikninga.
Ársreikningurinn byggir á kostnaðarverðsreikningsskilum og er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður. Ársreikningurinn er gerður í íslenskum krónum.
2. Ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki greiða almennt ekki tekjuskatta.
3. Eignir og skuldir í erlendum gjaldmiðlum eru umreiknaðar í íslenskar krónur í árslok. Viðskipti í erlendum gjaldeyri á árinu eru umreiknuð í íslenskar krónur á viðskiptadegi. Gengismunur sem myndast er færður í rekstrarreikning. Peningalegar eignir og skuldir sem bundnar eru verðtryggingu eru færðar miðað við vísitölur sem tóku gildi 1. janúar 2021. Breytingar sem myndast eru færðar í rekstrarreikning.
4. Varanlegir rekstrarfjármunir eru færðir til eignar á kostnaðarverði. Frá kostnaðarverði eru dregnar reiknaðar afskriftir.
Kostnaðarverð varanlegra rekstrarfjármuna samanstendur af kaupverði og öllum kostnaði við að koma eignunum á viðeigandi stað og í nothæft ástand.
Afskriftir eru reiknaðar sem fastur árlegur hundraðshluti af kostnaðarverði miðað við áætlaðan endingartíma og eignarhaldstíma.
5. Eignarhlutar í félögum eru færðir á nafnverði.
6. Birgðir samanstanda af endursöluvörum og rekstrarvörum. Birgðirnar eru metnar á síðasta innkaupsverði að teknu tilliti til gallaðra og úreltra vara.
7. Greiðslukortakröfur eru færðar meðal viðskiptakrafna. Viðskiptakröfur eru færðar á kostnaðarverði.
8. Handbært fé samanstendur af sjóði og bankainnstæðum.
9. Viðskiptaskuldir eru færðar á kostnaðarverði.
10. Tóbaksgjald er innheimt við sölu tóbaks og er því skilað mánaðarlega til Skattsins. Tóbaksgjaldið er skilgreint sem hluti af kostnaðarverði seldra vara í bókhaldi ÁTVR. Alls námu greiðslur tóbaksgjalds 5.970 m.kr. á árinu 2020.
Sundurliðun vörunotkunar | 2020 | 2019 |
---|---|---|
Vörunotkun áfengi | 29.580.575 | 23.342.019 |
Vörunotkun tóbak | 8.433.471 | 7.908.749 |
Vörunotkun umbúðir | 37.670 | 22.904 |
Samtals | 38.051.716 | 31.273.672 |
11. Laun og launatengd gjöld sundurliðast þannig:
Sundurliðun launa og launatengdra gjalda | 2020 | 2019 |
---|---|---|
Dagvinnulaun | 1.753.900 | 1.639.171 |
Yfirvinna | 753.327 | 690.435 |
Launatengd gjöld | 563.067 | 528.376 |
Viðbótarframlag til lífeyrissjóðs | 103.422 | 102.050 |
Áfallið reiknað orlof, breyting | 27.516 | 1.000 |
Samtals | 3.201.232 | 2.961.032 |
Launagjöld hækka um 8,1% milli ára. Reiknuð ársverk á árinu 2020 voru 356, tveimur fleiri en 2019. Hækkun launavístölu 2020 var 7,2%.
Laun og launatengd gjöld vegna forstjóra námu 22,3 m.kr. en voru 21,8 m.kr. árið á undan.
Áunnið orlof starfsmanna til desemberloka er reiknað og fært í ársreikninginn. Það nam 176,9 m.kr. í árslok 2020 en til samanburðar var það 149,4 m.kr. árið áður. Í síðustu kjarasamningum var samið um 30 orlofsdaga fyrir allt starfsfólk í fullu starfi.
Skuldbindingar ÁTVR vegna eftirlauna núverandi og fyrrverandi starfsmanna voru gerðar upp á árinu 1999. Skuldbindingar sem falla til árlega eru gerðar upp við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins jafnóðum. Samkvæmt uppgjöri LSR voru ógreiddar lífeyrisskuldbindingar B-deildar í árslok 2020 3,2 m.kr. Í lögum nr 127/2016 var gerð breyting um aukaframlag til A-deildar lífeyrisjóðs starfsmanna ríkisins. Hlutur ÁTVR árið 2020 100,2 m.kr en var 98,4 m.kr 2019.
12. Sundurliðun fjármunatekna og (fjármagnsgjalda)
Sundurliðun fjármunatekna og (fjármagnsgjalda) | 2020 | 2019 |
---|---|---|
Vaxtatekjur | 13.196 | 69.382 |
Arðstekjur | 0 | 1.500 |
Þóknanir vegna debet- og kreditkorta | (118.602) | (101.179) |
Fjármagnstekjuskattur | (2.709) | (15.541) |
Vaxtagjöld | (1.284) | (1.572) |
Samtals | (109.399) | (47.410) |
13. Varanlegir rekstrarfjármunir og afskriftir greinast þannig:
Bifreiðar | Fasteignir | Innréttingar og annar bún. | Samtals | |
---|---|---|---|---|
Stofnverð 1.1.2020 | 285.822 | 1.343.992 | 1.427.979 | 3.057.793 |
Viðbót á árinu | 58.771 | 245.659 | 304.430 | |
Selt og niðurlagt á árinu | (15.667) | (46.644) | (167.019) | (229.329) |
Stofnverð 31.12.2019 | 328.926 | 1.297.348 | 1.506.619 | 3.132.893 |
Afskrifað 1.1.2020 | 131.946 | 783.783 | 609.266 | 1.524.995 |
Afskrifað á árinu | 38.212 | 26.596 | 192.965 | 257.773 |
Selt og niðurlagt á árinu | (14.103) | (26.214) | (149.954) | (190.271) |
Afskrifað 31.12.2020 | 156.054 | 784.165 | 652.277 | 1.592.496 |
Bókfært verð 31.12.2020 | 172.871 | 513.183 | 854.342 | 1.540.397 |
Afskriftarhlutföll | 12-15% | 2-4% | 12-20% |
Gjaldfærð afskrift ársins var 257,8 m.kr., seldar og niðurlagðar eignir námu 17,8 m.kr.
Fasteignamat og vátryggingamat eigna félagsins í árslok greinist þannig:
Bókfært verð | Fasteignamat | Brunabótamat | |
---|---|---|---|
Fasteignir og lóðir | 513.183 | 3.159.735 | 3.651.910 |
14. Hlutabréf í Endurvinnslunni hf. eru færð á nafnverði 7.500 þús. kr.
15. Birgðir um áramót skiptast í áfengi, tóbak, umbúðir og rekstrarvörur:
2020 | 2019 | |
---|---|---|
Áfengi | 2.123.152 | 1.742.139 |
Tóbak | 178.787 | 176.577 |
Umbúðir | 15.279 | 9.572 |
Rekstrarvörubirgðir | 28.379 | 16.305 |
Samtals | 2.345.597 | 1.944.593 |
16. Viðskiptakröfur sundurliðast þannig:
2020 | 2019 | |
---|---|---|
Kröfur vegna greiðslukorta | 975.124 | 2.048.369 |
Aðrar viðskiptakröfur | 154.878 | 107.971 |
Samtals | 1.130.002 | 2.156.340 |
17. Yfirlit eiginfjárreikninga:
Yfirlit eiginfjárreikninga: | Óráðstafað eigið fé |
---|---|
Eigið fé 1.1. | 4.617.626 |
Hagnaður skv. rekstrarreikningi | 1.821.309 |
Arður til ríkissjóðs | (1.000.000) |
Eigið fé 31.12. | 5.438.935 |
18. Í tengslum við starfsemi ÁTVR voru 42 húsaleigusamningar í gildi í árslok 2020
19. Fimm ára yfirlit
2020 | 2019 | 2018 | 2017 | 2016 | |
---|---|---|---|---|---|
Rekstur: | |||||
Rekstrartekjur | 44.904 | 36.969 | 35.291 | 34.276 | 33.058 |
Rekstrargjöld | (42.698) | (35.619) | (33.937) | (32.729) | (31.216) |
Rekstrarhagn. f. afskr. | 2.206 | 1.350 | 1.354 | 1.547 | 1.842 |
Afskriftir | (276) | (246) | (237) | (208) | (222) |
Rekstrarhagnaður | 1.930 | 1.104 | 1.117 | 1.339 | 1.620 |
Hreinar fjárm.tekjur | (109) | (48) | (6) | 28 | 9 |
Hagnaður ársins | 1.821 | 1.056 | 1.111 | 1.367 | 1.629 |
Efnahagur: | |||||
Fastafjármunir | 1.548 | 1.540 | 1.326 | 1.239 | 1.166 |
Veltufjármunir | 5.761 | 4.705 | 5.008 | 5.104 | 5.772 |
Eignir alls | 7.309 | 6.246 | 6.334 | 6.343 | 6.938 |
Eigið fé | 5.439 | 4.618 | 4.561 | 4.450 | 4.834 |
Skammtímaskuldir | 1.870 | 1.628 | 1.773 | 1.893 | 2.104 |
Eigið fé og skuldir alls | 7.309 | 6.246 | 6.334 | 6.343 | 6.938 |
Helstu kennitölur um afkomu og fjárhagsstöðu fyrirtækisins á síðustu fimm árum:
2020 | 2019 | 2018 | 2017 | 2016 | |
---|---|---|---|---|---|
Rek.hagn.f.afskr./Tekjur | 4,9% | 3,7% | 3,8% | 4,5% | 5,6% |
Veltufjárhlutfall | 3,08 | 2,89 | 2,82 | 2,70 | 2,74 |
Eiginfjárhlutfall | 74,4% | 73,9% | 72,0% | 70,2% | 69,7% |
Arðsemi eigin fjár | 39,4% | 23,2% | 25,0% | 28,2% | 38,8% |